Dr. Hörður Þorgilsson

Dr. Hörður Þorgilsson

Auk þess að vera löggiltur sálfræðingur er ég sérfræðingur í klínískri sálfræði. Ég hef starfað í tæpa þrjá áratugi við ýmis sálfræðistörf, bæði hérlendis og erlendis og hef alla þá bestu menntun, þjálfun og réttindi sem hægt er að öðlast. Ég hef unnið lengi  við  meðferð andlegra veikinda en einnig  með þeim sem eru að glíma við heilsubrest af öðrum toga. Jafnframt þessum störfum hef unnið við stuðning, ráðgjöf  og handleiðslu fyrir starfsfólk stærsta vinnustaðar landsins, Landspítala. Fjölþætt önnur störf s.s. ráðgjöf, kennsla og skrif hafa líka verið fyrirferðarmikil á starfsferlinum. Ég tel mig njóta virðingar meðal starfsfélaga og þakklætis frá skjólstæðingum. 

Menntun

1979 : B.A. Sálfræði; Háskóli Íslands
1984 : M.A. Klínísk sálfræði; University of Connecticut, U.S.A.
1986 : Ph.D. Klínísk sálfræði; University of Connecticut, U.S.A.

Réttindi

1984 : Löggildur sálfræðingur, Menntamálaráðuneytið
1988 : Sérfræðingur í klínískri sálfræði,  Sálfræðingafélag Íslands
1993 : Sérfræðileyfi í klínískri sálfræði,  Heilbrigðisráðuneytið
1999 : Löggildur sálfræðingur í Minnesota, U.S.A.
2004 : Klínískur lektor við Háskóla Íslands
2013 : Viðurkenndur sérfræðingur og þjónustuaðili Vinnueftirlitsins 

Fagaðild

frá 1984 : Sálfræðingafélag Íslands
frá 1993 : Félag sérfræðinga í klínískri sálfræði
frá 1994 : Dáleiðslufélag Íslands
frá 1996 : Samtök bandarískra sálfræðinga (A.P.A.)
frá 2000 : Félag um hugræna atferlismeðferð
frá 2000 : Félag sjálfstætt starfandi sálfræðinga